|
|
11.09.2006 21:57:34 / öndin
það er nú ffrekar fátt að frétta hérna úr Reykjavíkinni hjá mér
annað en ég er farin að finna soldið mikið fyrir því að mér leiðist
hérna, og þá sérstaklega á kvöldin! En ég er samt farin að
hlakka smá til helgarinnar því að það eru réttir á föstudaginn, en
því miður þá kemst ég ekki á móti safninu á fimmtudaginn því þá
þarf ég nebla að klára verkefni í skólanum, en ég ætla samt sem
áður að reyna að tala kennarann eitthvað til um hvort ég megi gera
það heima eða eitthvað, en ég er samt komin með frí á föstudaginn
og það munar auðvitað öllu því það má ALLS ekki missa af réttunum
því þær eru bara einu sinni á ári. En hún Guðríður Eva
hestapía fór á fjall með öllum köllunum og fæ ég líklega ekki að
sjá hana fyrr en á fimmtudaginn eða föstudaginn en hlakka samt
alveg endalaust mikið til því ég er farin að sakna þess að við
djömmum tvær saman og gerum ýmisskonar skandal saman því ég á mínar
fyndustu djammskandala með henni og vona ég að það eigi ekki eftir
að verstna, og þá sérstaklega um helgina. En reyndar er það
yfirleitt ég sem kem mér í ekki heimsins bestu aðstöðu með henni
því hún lætur mig alltaf verða ,,smááá" vandræðalega og getur hún
reyndar skotið að mér ýmsum vandræðalegum minningum! En svo
er Réttaball í Árnesi og það verður súper stuð vonandi og er mín
sko búin að kaupa sér kjól og alles fyrir það .............ég
ætla nú að láta þetta gott heitið í bili því það er hvort eð er
enginn sem skoðar þetta eins og vanalega
»
09.09.2006 23:50:14 / öndin
»
31.08.2006 11:55:08 / öndin
já nú er skólinn byrjaður, reyndar fyrir rúmri viku, en ég
er allavega byrjuð í nýja skólanum og finnst það svona "lala" en ég
er allavega ánægð með það sem ég er að læra frekar en málabrautin
sem ég var ekki aaaalveeeg að fíla. En ég er s.s. að fíla
námið í botn en þess á milli sem ég er ekki í tíma þá sit ég uppi í
matsal og horfi á skrítið fólk, stelpur og stráka, í síðum svörtum
kápum, með göt allstaðar í andlitinu og málað eins og ég veit ekki
hvað og með dragandi keðjur á eftir sér! Soldið skrítið fólk.
En ég þekki í rauninni engan í þessum skóla en sem betur fer þá
hitti ég eina stelpu í fyrsta tímanum sem heitir
Sara og reyndist vera vinkona hennar Svövu systur og hún
er líka sveitalúði sem ratar ekki neitt í borginni heldur svo að
við höngum soldið saman þegar við erum saman í tíma.
En talandi um málað fólk með dragandi keðjur á eftir sér á
göngunum þá en ein manneskja sem ég er alltaf að pæla í hvort sé
strákur eða stelpa því hann er með klippingu eins og stelpa en er
samt alltaf málaður í hringum augun og með ÞVÍLÍKT bleikan
kinnalit.
Verð að fara núna því ég er að fara í skólann, en held áfram að
pæla í skrítnu manneskjunni með kinnalitinn til þess að komast að
því hvor kynið hann sé!
»
19.07.2006 15:28:34 / öndin
»
13.03.2006 15:15:50 / öndin
|
( ) klesst á bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
(x) kveikt í þér viljandi (ekki alvarlega sko)
(  borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
( ) farið yfir á rauðu ljósi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir
vagni
( x) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu-
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala
um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera
ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
( ) dansað í
rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur
undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt
um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á
ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
(x) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n
í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir
þig |
já ég fann þessar spurningar á síðunni hennar Ástu Sifjar
(www.blog.central.is/krilid).
Það er nú samt ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði
síðast. el Rodeo eru bara farnir að spila á ýmsum stöðum og
aldrei að vita nema þeir eiga eftir að verða frægir einn
daginn???. En el Rodeoeru strákar í ML og þeir eru
meira að segja bara ansi góðir. Ég fór að hlusta á þá á
bar11 á föstudagskvöldið en var nú bara þæg og fór fljótlega heim
að sofa því það var árshátíð á laugardaginn. það var nú bara
mjög gaman en samt eitthvað af slagsmálum og fullt af blóslettum
voru ennþá á veggjunum niðrí skóla í dag. Skítamórall var að
spila og mættu þeir ekki fyrr en klukkan 01 en þeir áttu að byrja á
milli 11 - 12. þegar þeir loksins komu þá var Hanni ekki einu
sinni með kjuðana með sér og þurftu þess vegna að fá hjá Guðna
lánaða. En það var mjög gaman og ég skemmti mér mjög vel á
balli með þeim. Greyið Solla dó fyrir ballið en ég fékk
eitthvað að finna fyrir því vegna þess að hún ældi nokkuð
hressilega á pilsið mitt en maður var nú samt ekki verri fyrir það
því þetta var bara smávægi af kampavíni. Og svo eftir ballið þá
dráðust Kiddi (el Rodeo) og Ragga bjarna inni hjá mér og sváfu þar
alla nóttina. En þau hafa allavega fengið betri stað að sofa á
en Stjáni sem hafði repist í pínu lítilli skúringarkompu yfir á
Kös fyrir ballið og vaknaði síðan morguninn eftir og var ekki
alveg viss um að hann væri lifandi því það var alveg svarta myrkur
og síðan lá hann í einthverri ,,kleinu", meiri vitleysan á
liðinu
En ég segi þetta bara gott í bili því ég ætla að skreppa og fá
mér að borða.
»
20.02.2006 11:06:08 / öndin
já það var hún Silvía Nótt sem sigraði með yfirburparsigri á
laugaraginn var! hún fékk alveg heilar meira en 70.000
atkvæði. Ég var í 50 afmæli á laugardaginn og það var allt
gamla fólkið að segja mér að kjósa Silvíu Nótt svo það var nú ekki
bara unglingarnir að kjósa! ég reyndi meira en 10x að hringja
og kjósa en náði bara 1x inn svo það hefur verið frekar mikið álag
á símkerfinu þarna. En ég nenni ekki bara að tala um gamlar
frænkur og símkerfi, málið er að Ragga Besta vínkona mín er búin að
búa til heimasíðu fyrir okkur Spánarfara 10. ágúst 2006.
slóðin er auðvitað www.blog.central.is/countdown
. Allir þeir sem fara inná og skoða hvað það eru margir dagar
þangað til við förum út eiga að kvitta fyrir sig!
ég verð að hætta núna því ég er að fara í tíma hjá Conniu
sjáumst (nei djók)
»
17.02.2006 09:17:29 / öndin
já úff ég er ekki að stana mig í því að vera með eitthverja
bloggsíu í gangi, nenni ekki einu sinni að setja inn myndir En
það er víst ýmislegt búið að gerast síðan í byrjun janúar, fullt af
böllum, pakkhúsferð og svo nokkur bæjarröllt þar sem var skellt sér
á nokkra skemmtistaði en verið í mis góðu ástandi Svo er
Heiðrún orðin 18 ára og hélt hún uppá það held ég í 4 daga;
fimmtudag, föstudag, laugardag og svo var sunnudagurinn hjá henni
tekinn í það að sofa úr sér. Skyldó var líka haldið þar sem
sumir sýndu hina hliðina á sér, bæði þær góðu og vondu. T.d.
það að Gróa & Arnar litli voru eitthvað að maka sér en svo
þurfti hún aðeins að bregða sér á salernið en greyið Arnar tók ekki
eftir því að Holger hafði plantað sér við hina hliðina á þeim og
snéri Arnar sér og byrjaði að þreifa á Holgeri eins og hann væri
Gróa. Holger var ekki alveg að lítast á þetta og beið hann
þangað til að Arnar var kominn niðrí buxurnar á Holgeri en þá sagði
holger: ,,mig langar í þig", með svona perralegri rödd að
Arnar efur ekki getað ná skömmustu svipnum af sér.
það gerðist nú samt líka svo ótrúlega mikið að ég er ekki alveg
að nenna að skrifa það allt en jú það gerðust ýmsir hlutir sem ekki
er hægt að nefna hér svo ég lendi nú ekki í fleiri
vandræðum.
En það sem er frammundan hjá mér er það að við erum að fara að
æfa leikrit fyrir árshátíðina þannig það er spurning hvort
maður hafi tíma til þess að fara á hestbak, en ég vona þá
að hún Heiðrún mín skelli sér ekki bara á bak fyrir mig
og tuskar hana Golu mína smá til. Helgin er ekkert svakalega
plönuð hjá mér nema að ég er að fara á fund vegna leikritsins kl.
15 og svo ætla ég smá að kíkja heim á Flúðir og skella sér á
hestamanna bingó en það er spurning hvort maður vinni eitthvað
skemmtilegt því ég er svona frekar óheppin í spilum svo ég bíst
ekki við neinum vinningi, og hvað þá folatolli eða folaldi? ÚFF

Ég læt þetta duga í bili og lofa að vera duglegri að blogga núna
frammundan.
SÍYA
»
05.01.2006 09:17:39 / öndin
»
03.01.2006 22:33:48 / öndin
já loksins þá er maður mættur á vatnið og laus og liðugur frá
öllu veseni!!! en nú ætla ég og Heiðrún stóra að kíkja á
fólkið  
sjáumst
»
26.12.2005 23:47:29 / öndin
já það er mjög svo gaman í Norge, borða 18 tíma á sólarhringnum
því maður er varla vaknaður þá er spurt hvort maður er ekki svanur
og allt eldhúsborðið er fyllt af mat bara fyrir mig! og svo þegar
ég hef lokið við morgunmatinn þá eru bornar fram kökur (amma var
akkúrat núna að spurja hvort ég vildi ekki fá eitthvað að borða)!
Svo er farið í heimsókn til gamla frænkur og þar er allt fullt af
kökum og gosi og setið þar hálfan daginn. svo er komið að því
að fara heim þá er boðið manni ís og ýmislegt snakk þangað til
kvöldmaturinn er tilbúinn. Svo þegar maður er varla ekki búinn
að standa upp frá matarborðinu þá er komið að sækja mann til að
fara í annað kökuboð þar sem er setið fram eftir kveldi
Já og svo í kvöld var ég í kökuboði og í fyrsta sinn í 7 daga
sem manni var boðið nammi þá sat ég með hana í fanginu og HÁMAÐI í
mig.
en ég segi bara allt það fína og bið að heilsa ykkur á íslandi

Gleðileg jól
»
20.12.2005 06:41:37 / öndin
Já loksins þá er maður búinn í prófunum (reyndar fyrir kanski
soldið mörgum dögum) en svo er ég núna á flugstöðinni og klukkan er
06:38 am. og ég er að fara að fljúga eftir rúman klukkutíma!
við eigum eftir að þurfa að bíða á Gardemoen (flugstöðin í Noregi)
í HEILA 5 TÍMA eftir millilandaflugi En núna ætla ég að hætta og
bið að heilsa öllum og skila jólakveðju til þeirra sem ég gleymdi
að senda jólakort til! (Hildur, ég vissi ekki heimilisfangið
þitt ).
Bið að heilsa og svo er það,:
GLEÐILEG JÓL OG GOTT FÆRSÆLT KOMANDI ÁR
P.S. Flúðagellur, þið lofuðuð mér að fara með mér á
áramótaball
»
09.12.2005 14:28:42 / öndin
veiii -það eru bara 3 próf eftir...... get ekki beðið! bara
helmingurinn eftir og ég er ekki að nenna þessu lengur en ég á
pottþétt eftir að rúlla þessu upp  Núna er ég í heimsókn hjá
Hugrúnu og það er alveg geggjað stuð hún er nebbla svo
SKEMMTILEG!!!
Sjáumst 
»
05.12.2005 13:00:31 / öndin
»
25.11.2005 13:29:19 / öndin
»
23.11.2005 21:32:06 / öndin
já nú er komið að því ég er að fara í verklega bílprófið á
morgun og ég er bara ekki lítið stressuð!!! ég var í tíma í
dag og hann var að kenna mér að taka af stað i brekku, og gamli
kallinn sagði að ég væri einsog gamall leigubílstjóri- en það er
víst voða gott að vera svoleiðis því að þeir eru svo þrælvanir
þessu!
En svona fleira nýtt að frétta þá fór ég að heimsækja hana og
litla-barnið hennar síðasta sunnudag. VÁÁÁ hvað hann er
fallegur hann er ekkert smá mikið krútt, ótrúlega brúnn einsog
hún Rakel (eða svona einsog hún var, hann tók allan litinn af sætu
mömmu sinni), en allavega þá fórum við Guðríður saman og vorum
alveg að dást að honum. En litla greyið var í svona spelkum þannig
að hann var með lappirnar útí loftið, en ástæðan að hann var i
svoleiðis var sú að hann sat sem fastast í bumbunni á mömmu sinni
allan tíman þannig að hann þurfti að vera tekinn með keisara En
mér finnst hún alveg ótrúlega dugleg hún Rakel.
já og síðustu helgi var náttfata-ball og það var nú alveg mjög
gaman en samt ekki eins gaman og lokaða ML-ballið (það toppar
ekkert það). En það gerðist nokkuð skrautlegt á ballinu t.d. voru
Heiðrún og Gróa að dansa við tvo yngri gaura sem voru berir að
ofan, káfandi á þeim á ýmsum stöðum og slefandi upp í þær til
skiptis! maður var nú alveg í sjokki þar til þegar þær ætluðu að
gista inni hjá mér þá voru þær búnar að bjóða þessum gaurum að
gista hjá sér í MÍNU HERBERGI! þarna fóru þær yfir strikið......!
Gróa sem reið síðast í rúmminu mínu á síðasta balli og 1 löppin
brotnaði ætlaði að reka mig útúr mínu eigin herbergi svo að 2
móíkanar og 1 stór dvergu gætu hjakkast í rúmminu mínu alla nóttina
og brotið hinar lappirnar sem eftir voru. En Edda
harða lét þær ekki ganga svona langt. þannig að ég eiddi
2manna rúmminu mínu ein flestan hlutan á nóttinni því að heiðrún
kom undir morgunin því hún komst ekki inn til sín því
að Solla og vinkonur hennar sváfu sem fastast eða þóttust ekki
heyra í henni allavega til að opna fyrir henni, það hefði
heldur ekki verið pláss fyrir hana hjá þeim því að sólveig
er ,,smá" plássfrek.
En ég ætla að kveðja bara núna en samt minna ykkur á að ég
á afmæli á laugardagin 26. nóvember, ef það er ekker sem les
þetta þangað til.
»
Síður: 1 2
|
|